toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis freibergi

Freibergi
Labidochromis freibergi

Stærð: 7-9 cm

Kynin: Hængurinn er ljósblár með dökkblá þverbönd. Hrygnan er brúngrá (mið mynd). Endrum og eins verður til hrygna sem er alveg eins og hængurinn í útliti. Nefndur í höfuðið á Jacob Freiberg.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við norðaustanvert Malavívatn hjá Likoma-eyju út af Cobué (neðsta mynd). Vinsæll búrafiskur hér áður fyrr.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Freibergi
Freibergi1
Freibergi2
botn