|
Gigas Labidochromis gigas
Stærð: 9-12 cm
Kynin: Einna stærstur í ættinni og vísar latínuheitið til þess - gigas. Hængurinn er blár með vott af dökkum þverböndum. Hrygnan er brúngrá og yfirleitt sjást engar rendur (mið mynd).
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við norðaustanvert Malavívatn hjá Likoma-eyju og Chisumulu-eyju út af Cobué (neðst t.h.).
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|