toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis heterodon

heterodon

Heterodon
Labidochromis heterodon

Stærð: 7-9 cm

Kynin: Litlitlir og brúnir fiskar. Framtennur eru einbrodda en aðliggjandi tennur tvíbrodda (sbr. heitið “heterodon”). Hængurinn er brúnleitur með blárri slíkju á hliðinni en hrygnan brún (mið mynd).

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 2-10 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við suðaustanvert Malavívatn hjá Boadzulu-eyju (neðri mynd). Lítt þekkt tegund.


Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

heterodon1
botn