toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis ianthinus

Ianthinus

Ianthinus
Labidochromis ianthinus

Stærð: 7-9 cm

Kynin: Hængurinn er blárbrúnn með dökk þverbönd en hrygnan grábrún með ógreinilegri þverbönd (mið mynd).

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum á 2-10 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við vestanvert Malavívatn hjá Mbenji-eyju (neðri mynd til hægri). Nánast óþekkt tegund.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Ianthinus1
Ianthinus2 Ianthinus3
botn