|
Lividus Labidochromis lividus
Stærð: 7-8 cm
Kynin: Hængurinn er dökkleitur með dökk þverbönd og ljósblátt á milli. Hrygnan er grábrún (mið mynd). Nafnið merkir “blýlitaður, bláleitur.”
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi. Flóttaleg tegund.. Fiskurinn finnst milli Makulawe Point og Ndomo Point á austurströnd Likomo-eyju við austanvert Malavívatn (neðri mynd). Lítt þekkt tegund.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|