toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis maculicauda

Maculicauda

Maculicauda
Labidochromis maculicauda

Stærð: 8-10 cm

Kynin: Nafnið merkir “flekkóttur kviðuggi.” Frekar ílangur fiskur. Hængurinn er ljósleitur með mjó dökk þverbönd og langsum rendur og bláum bjarma. Ungar hrygnur eru gulleitar að sjá en eldri gráar (mið mynd).

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi. Flóttaleg tegund.. Fiskurinn finnst bæði við norðaustur- og norðvestur- strönd Malavívatns td. Katali-eyju (neðri mynd). Oft fluttur inn en ekki mjög vinsæll sökum litleyfðar. Líkist L. flavigulis og L. strigatus.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Maculicauda1
botn