toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis maculicauda (Cove Mountain)

Maculicauda “Cove Mountain”
Labidochromis maculicauda (Cove Mountain)

Stærð: 8-10 cm

Kynin: Nafnið merkir “flekkóttur kviðuggi.” Frekar ílangur fiskur. Hængurinn er bláleitur með mjó dökk þverbönd og langsum rendur og bláum bjarma. Hrygnur eru gráleitar.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi. Flóttaleg tegund. Fiskurinn finnst bæði við norðaustur- og norðvestur- strönd Malavívatns td. Cove Mountain. Líkist L. flavigulis og L. strigatus.

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Maculicauda “Cove Mountain”
botn