|
 |
|
Maculicauda “Lundo Island” Labidochromis maculicauda (Lundo Island)
Stærð: 8-10 cm
Kynin: Nafnið merkir “flekkóttur kviðuggi.” Frekar ílangur fiskur. Hængurinn er bláleitur með mjó dökk þverbönd og langsum rendur og bláum bjarma. Hrygnur eru gráleitar.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi. Flóttaleg tegund. Fiskurinn finnst við norðausturströnd Malavívatns td. Lundo-eyju. Líkist L. flavigulis og L. strigatus.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|