toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Labidochromis mbenjii

Mbenji

Mbenjii
Labidochromis mbenjii

Stærð: 7-8 cm

Kynin: Bæði kynin eru nánast brún, hrygnan líka (mið mynd). Hængurinn sýnir tvær láréttar rákir eftir því hvernig skapi hann er í og einnig þverrendur.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 10 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við norðvesturströnd Malavívatns, eingöngu út af Mbenji eyjaklasanum (neðsta mynd).

Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 20

Fóður: Þurrfóður, dafnía.

Mbenji1
Mbenji2
botn