|
|
Mylodon Labidochromis mylodon
Stærð: 7-9 cm
Kynin: Bæði kynin eru hvít. Blár glampi á búk hænga.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5- 10 m dýpi, sjaldan dýpra en 20 m. Fiskurinn finnst við norðausturströnd Malavívatns, eingöngu út af Mumbo-eyju (neðri mynd). Nánast óþekkt tegund í heimabúrum.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|