|
 |
|
Pallidus Labidochromis pallidus
Stærð: 7-9 cm
Kynin: Hængurinn er alhvítur með bláum glampa á hliðum. Hrygnur eru meira gráhvítar (mið mynd).
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagn- vart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í grýttum grynningum niður á 5 m dýpi, sjaldan dýpra. Fiskurinn finnst við norðvesturströnd Malavívatns út af Maleri eyjaklasanum, nánar tiltekið Chiudunga Rocks og Nakanthenga-eyja. Nánast óþekkt tegund í heimabúrum.
Æxlun: Munnklekjari. Auðveldur í ræktun. Hrygnur og ungviði þurfa að geta leitað skjóls í hellum eða holum.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8,2
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía.
|
|