toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Lafresnaye’s Macaw

Lafresnaye’s Macaw
Ara severa castaneifrons

Lýsing: Eins og A. severa severa en að jafnaði stærri, ennis- og hökulitur meira hnotubrúnn.

Lengd: 48 cm.

Lífslíkur: 60 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. Kvenfuglar yfirleitt smærri.

Uppruni: Frá A-Panama og V-Kólombíu yfir A-Kólombíu, S-Venesúelu, Ekvador, A-Perú til N-Bólivíu og norðurhuta Mato Grosso í norðvesturhluta Brasilíu.

Um fuglinn: Stærstur dvergara. Forvitinn og kvikur. Ótamdir fuglar oft hlédrægir og stressaðir. Heima- ræktaðir fuglar hænast fljótt að eigandanum. Harðgerðir eftir að þeir aðlagast búrlífi. Hafa unun af að baða sig td. í rigningu. Naga mikið og þurfa mikið af ferskum greinum.

Hávaðasemi: Í meðallagi hávær.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.

severacasta

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Ara severa severa

botn