|
Lear´s Macaw (Indigo Macaw) Anodorhynchus leari
Lýsing: Aðallitur kóbaltblár; höfuð, háls, bringa og kviður meira grænblár; gulleitt bersvæði kringum neðri gogg; undirhlið stéls og vængja svartleit; goggur kraftmikill og svartleitur; augnhringur gulur; augu brún; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar með styttra stél; efri goggur ljósari.
Lengd: 75 cm.
Lífslíkur: Allt að því 100 ár.
Um kynin: DNA-greiningar þörf, en kvenfugl oftast aðeins minni.
Uppruni: Norðaustur Bahia hérað, N-Brasilía.
Um fuglinn: Líkist að mörgu leyti híasintu aranum í útliti. Lear arnpáfinn þarfnast mikillar athygli. Hann þarf mikið pláss, enda stór fugl. Hann er líflegur og forvitinn, leikglaður og skemmtilegur fugl. Hænist fljótt að eigandanum. Nagar mjög mikið og þarf nóg af greinum. Getur verið með öðrum örum utan varptíma og jafnvel með smærri páfagaukum á varptíma. Pör bindast sterkum böndum. Hafa unun af að baða sig og vera úti í rigningu.
Hávaðasemi: Getur verið hávær, einkum kvölds og morgna.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og ofveiðis. Innan við 200 eftir í náttúrunni.
|
|