|
Lemon Tetra Hyphessobrycon pulchripinnis
Stærð: 3,8 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er spengilegri en hrygnan og litsterkari.
Um fiskinn: Sítrónutetran er falleg smátetra sem lyndir vel við aðra rólega fiska. Hún er best í torfu, étur ekki gróður og vill ekki vera í mjög björtu búri. Gott að hafa vel af gróðri og rótum til að skapa ákjósanleg skilyrði fyrir hana. Harðgerður og skemmtilegur fiskur.
Uppruni: S-Ameríka: vatnasvæði Tapajós-fljóts.
Æxlun: Stráir eggjum á hefðbundinn tetru máta. Ekki svo erfiður í ræktun. Best að hafa þéttan gróður til að hrygna í og fjarlægja foreldrana eftir got. Hrognin klekjast út á 24-36 tímum og seiðin eru frísyndandi eftir 3-4 daga. Mikilvægt að fóðra vel og skapa rétt skilyrði, annars dofnar guli liturinn í tetrunni.
Búrstærð: 60 l
Hitastig: 23-28°C
Sýrustig (pH): 5,5-8
Harka (gH): 25
Fóður: Þurrfóður, blóðormar og önnur smáskordýr.
Verð: 380 kr.
|
|