|
 |
|
Lyretail Molly Poecilia velifera
Stærð: Hængar 10 cm, hrygnur 12 cm.
Kynin: Karlfiskarnir eru fallegir og hafa stóran og mikinn bakugga, oft með lýrusporð.
Um fiskinn: Vinsæll fiskur sem gýtur lifandi afkvæmum. Seglmollinn er mjög fallegur og kemur í mörgum litbrigðum. Hann er venjulega friðsamur og semur vel við aðra fiska. Sumir karlfiskar er ágengir og þá er ráðið að útvega þeim nógu mikið af kvenfiskum. Þeir una sér best í gróðursælum búrum og þótt þeir séu harðgerir þarf búrvatnið að vera gott.
Æxlun: Seglmollar gjóta 10-60 seiðum á um 60-70 daga fresti. Best er að setja seiðin í annað búr eða uppeldisnet til að þeir verði ekki étnir.
Uppruni: Norður-Ameríka: suðurhluti Bandaríkjanna. Ræktunarafbrigði finnast ekki í náttúrunni.
Búrstærð: 100 l
Hitastig: 25-28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (dH): 13-19
Fóður: Þurrfóður. Þurfa mikið grænfóður.
Verð: Sailfin Molly (allir litir) 990 kr.
|
|