|
 |
|
Auratus Mbuna (Golden Mbuna) Melanochromis auratus
Stærð: 20 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari og dökknar að neðan á æxlunartímabilinu.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum á 3-10 m dýpi, jafnvel á 20-40 m dýpi. Finnst í suðurhluta Malavívatns frá Jalo Reef norður til Nkhota Kota og suður með allra vesturströndinni til Crocodile Rocks. Finnst ekki við austurströnd vatnsins.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 22-26°C
Sýrustig (pH): 7-8,5
Harka (gH): 10-15
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|