|
Johanni Mbuna (Bluegray Mbuna) Melanochromis johannii
Stærð: 12 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en hrygnan og verður blár með svörtu taflmynstri á tímgunar- tímabilinu meðan hún er gulleit með brúnum langsum röndum. Nokkur afbrigði til ss. Electric Blue.
Um fiskinn: Jóhanninn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum á 3-10 m dýpi, jafnvel á 20-40 m dýpi. Finnst við Masinje Rocks hjá Cape Ngombo í Malavívatni. Vinsæl mbúna og ákveðin.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 22-25°C
Sýrustig (pH): 7,3-8,5
Harka (gH): 9-19
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|