|
 |
|
Parallel Striped Mbuna Melanochromis parallelus
Stærð: 15 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er ljósleitur með dökkum langsum röndum og áberandi eggjabletti, og verður svarblár á tímgunartímabilinu. Hrygnan er hvítleit með dökkum röndum.
Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum á 2-28 m dýpi. Finnst við Chisumulu Island, Likoma Island og við norðvesturströnd Malavívatns.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 7,3-8,5
Harka (gH): 7-18
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|