toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Melanochromis sp. ”Auratus Dwarf”

Dwarf Auratus
Melanochromis sp. ”Auratus Dwarf”

Stærð: 7-8 cm.

Kynin: Hængurinn líkist M. auratus en er minni og langsum rákirnar ógreinilegri. Búkurinn er gráblárri frekar en svartur. Hrygnan er hins vegar gulljósbrún (mið mynd).

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum á 3-10 m dýpi, jafnvel á 20-40 m dýpi. Fiskurinn finnst í austurhluta Malavívatns út af Makanjila og Masinje.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.

Búrstærð: 100 l

Hitastig:  22-28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 20

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Auratus Dwarf
Auratus Dwarf 1
Auratus Dwarf 2
botn