toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Melanochromis sp. ”Blue"

Melanochromis sp. Blue

Blue
Melanochromis sp. ”Blue”

Stærð: 12-14 cm.

Kynin: Mjög dökkleit og stór mbúna. Langsumböndin tvö eru stundum sýnileg hjá báðum kynjum og dökk þverbönd á bakinu. Bláleitur glampi er á hliðum hænga. Stundum eru þeir alveg blágráir.

Um fiskinn: Er ekki eigingjarn á svæði og frekar mikill einfari. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum, sjaldan niður 40 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðvestur- og norðurhluta Malavívatns - í Nkhata Bay, við Chitendi-eyju (neðri mynd) hjá Chilumba og Likoma-eyju, og allt frá Ikombe til Hai Reef.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  22-28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 20

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Melanochromis sp. Blue 1
botn