toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Melanochromis sp. ”Blue" Chilumba

Melanochromis Blue (Chilumba)

Blue Chilumba
Melanochromis sp. ”Blue” Chilumba

Stærð: 12-14 cm.

Kynin: Mjög dökkleit og stór mbúna. Langsumböndin tvö eru stundum sýnileg hjá báðum kynjum og dökk þverbönd á bakinu. Bláleitur glampi er á hliðum hænga, en hrygnan brúnleitari (mið mynd). Bæði kynin eru með gula brún í sporði og uggum.

Um fiskinn: Er ekki eigingjarn á svæði og frekar mikill einfari. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum, sjaldan niður 40 m dýpi. Fiskurinn finnst í norðvesturhluta Malavívatns við Chirwa-eyju (neðsta mynd) hjá Chil- umba.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  22-28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 20

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Melanochromis Blue (Chilumba) 1
Melanochromis Blue (Chilumba) 2
botn