toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Melanochromis vermivorus    

melanochromis_vermivorus

Purple Mbuna
Melanochromis vermivorus

Stærð: 9 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er ljósblár með 2-3 dökkum, óreglulegum, langsum böndum. Bakugginn er næst- um fjólublár. Hrygnan er mjög fölleit með röndum.

Um fiskinn: Hængurinn eignar sér svæði og ver gagnvart kynsystkinum. Þarf rúmgott búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Heldur sér í hálfgrýttum grynningum á 3-10 m dýpi, jafnvel á 20-40 m dýpi. Finnst í Monkey Bay, Nankumba Peninsula, Eccles Reef, West Reef og Domwe, Thumbi West, Mumbo, Maleri, Mbenji, Chinyankwazi-eyjar í Malavívatni.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum. Geta átt 20-40 seiði í goti.

Búrstærð: 200 l

Hitastig:  22-26°C

Sýrustig (pH): 7-8,5

Harka (gH): 7-18

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

melanochromis_vermivorus_female
botn