|
Mexican Green Macaw Ara militaris mexicana
Lýsing: Eins og hermanna arinn, en að jafnaði aðeins dekkri grænn og rauður í fiðrinu; flestir án olívíubrúns blæs á bak og vængblöðkum; stærri.
Lengd: 80 cm.
Lífslíkur: 60 ár.
Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri.
Uppruni: Frá Chiapas og Oaxaca heráði norður til suðvesturhluta Chihuahua, norðausturhluta Sinaloa og suðausturhluta Sonora héraðs, Mexíkó.
Um fuglinn: Líflegur og hugaður, forvitinn og skemmtilegur. Hann nagar mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum. Hann er harðger fugl. Honum semur vel við minni fugla utan fengitíma og unir sér vel með fuglum af sinni tegund á fengitíma.
Hávaðasemi: Hávaðasamur.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES I. Í útrýmingarhættu vegna skógarhöggs og ágengni manna.
|
|