toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Military Macaw

Military Macaw
Ara militaris miltaris

Lýsing: Aðallitur grænn; enni og nefsvæði rautt; hvítt bersvæði um kinnar og svartar fjaðurrákir á þvers og kruss; fuglinn roðnar á bers svæðinu þegar hann æsist; fjaðrir umhverfis bersvæði kinna og höku olivúbrúnar-svarbrúnar; bláleitur blær á hnakka- fjöðrum; bak og undirvængsblöðkur margra eru með olivíukoparleitum blæ; neðra bak, lendar, efri og neðri stélblöðkur bláar; efri hlið ytri aðalflugfjaðra og aðalvængblöðkur bláa; efri hlið stéls rauðbrún með bláum endum; undirhlið stéls og vængja olivíugul; goggur svartleitur með fölum endum; augu ljósgulleit; fætur dökkgráir.

Óþroskaðir fuglar með daufari fjaðrir; brún augu.

Lengd: 70 cm.

Lífslíkur: 60 ár.

Um kynin: Lítill útlitsmunur. Karlar ögn stærri.

Uppruni: Santa Marta og Perij-fjöll í Kólombíu, meðfram suður- og vesturhlíðum Austur-Andesfjalla til Bucaramanga, meðfram austur- og norðurhlíðum miðhluta Andesfjalla til miðhluta Cauca-dals og einnig austurhlíðar efri Magdalena-dals og and Macarena-fjalla; stundum einnig í Dagua-dal; NV-Venesúela, A-Ekvador og héruðin Lambayeque og Cajamarca í N-Perú.

Um fuglinn: Hermanna arinn er líflegur og hugaður, forvitinn og skemmtilegur. Hann nagar mikið og þarf þykkar trjágreinar handa honum.  Hann er harðger fugl. Honum semur vel við minni fugla utan fengitíma og unir sér vel með fuglum af sinni tegund á fengitíma.

Hávaðasemi: Hávaðasamur.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES II. Lifir enn villtur en fer óðum fækkandi.

Military

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

Undirafbrigði:
Ara militaris boliviana
Amazona militaris mexicana

botn