|
 |
|
Multibar Shell-dweller Cichlid (Multifasciatus) Neolamprologus multifasciatus
Stærð: 5 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni.
Um fiskinn: Þessi litla siklíða er frekar róleg af Tanganyikasiklíðu að vera. Hún telst til kuðunga- siklíða og gerir sér gjarnan heimili í tómum kuðungum. Heppilegast er að hafa pör eða nokkrar hrygnur á hvern hæng. Þeir vilja sendinn botn með nóg af felustöðum. Þekkjast á smæðinni og mörgum fínum þverböndum. Ganga helst í búri með minni og rólegri siklíðum af Julidochromis- og Neolamprologusætt. Nokkuð harðgerður en plássfrekur fiskur sem getur mokað óhemjumagni af sandi fram og aftur um búrið. Góð vatnsfiltrun nauðsynleg og gæta þarf þess að skipta oft um vatn en lítið í einu (10-15% á viku). Viðkvæmir fyrir vatnsgæðum. Æxlun: Það er ekki erfitt að fá þessa siklíðu til að æxlast en hún hrygnir oftast í kuðungum og fer leynt með. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Hrognin klekjast út á 48 klst og agnarsmá seiðin eru frísyndandi 7-9 dögum síðar og þarf að fóðra á fíngerðustu fæðu.
Búrstærð: 100 l
Hitastig: 24-27°C
Sýrustig (pH): 8,2-9,0
Harka (gH): 15-25
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, þörungar.
Verð: 2.690 kr.
|
|