|
Six-bar Cichlid (Sexfasciatus) Neolamprologus sexfasciatus
Stærð: 15 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni. Þrjú megin litarafbrigði: blár, gylltur, gulhvítur.
Um fiskinn: Þessi siklíða er afar árásargjörn á sína eigin tegund. Hún vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig, einkum fyrir hrygnurnar að fela sig innan um. Best að hafa sendinn botn. Myndarlegur, fiskur með 6 svörtum þverböndum. Þeir henta best einir í búri því þeir geta verið mjög grimmir á hrygningartímanum. Best að hafa ekki fleiri en eitt par í hverju búri. Geta þó gengið með öðrum afríkusiklíðum, einkum úr Tanganyikavatni. Harð- gerður en plássfrekur fiskur. Góð vatnsfiltrun nauðsynleg og gæta þarf þess að skipta oft um vatn en lítið í einu (10-15% á viku). Viðkvæmir fyrir vatnsgæðum. Nokkur afbrigði til: “Gold”, “Fulwe”, “Kambwimba”, “Kasanga”, “Namansi”, “Nkondwe”, “Samazi”. Æxlun: Það er frekar erfitt að fá þessa siklíðu til að æxlast en hún hrygnir oftast í mjóum hellum eða sprungum. Mynda föst pör sem verja hrygningar- svæðið, hrognin og afkvæmin. Hrognin klekjast út á 48 klst og seiðin eru frísyndandi 7-9 dögum síðar og má fóðra á dafníu eða artemíu. Ekki hefur tekist að fá bláa afbrigðið til að fjölga sér í búri.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 27°C
Sýrustig (pH): 8,6-9,1
Harka (gH): 18-24
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: ”Gold” 2.790 kr.
|
|