|
Four Spine Cichlid (Tetracanthus) Neolamprologus tetracanthus
Stærð: 20 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni.
Um fiskinn: Þessi stóra og stæðilega siklíða er frekar róleg miðað við stærð. Hún nærist í botndýrum og skeljum en mylur ekki skelina heldur sýgur snigilinn úr honum. Þessar siklíður vilja sendinn botn með nóg af felustöðum. Þekkjast á stærðinni og perlubönd- unum eftir endilöngum búknum. Ganga í búri með rólegri siklíðum af Julidochromis- og Neolamprologusætt. Nokkuð harðgerður en plássfrekur fiskur sem getur mokað óhemjumagni af sandi fram og aftur um búrið. Góð vatnsfiltrun nauðsynleg og gæta þarf þess að skipta oft um vatn en lítið í einu (10-15% á viku). Viðkvæmir fyrir vatnsgæðum. Æxlun: Það er ekki svo erfitt að fá þessa siklíðu til að æxlast en hún hrygnir oftast á steinum eða í hellum. Mynda föst pör sem verja hrygningarsvæðið, hrognin og afkvæmin. Hrognin klekjast út á 48 klst og seiðin eru frísyndandi 7-9 dögum síðar.
Búrstærð: 200 l
Hitastig: 23-25°C
Sýrustig (pH): 7-8
Harka (gH): 12-15
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: 2.990 kr.
|
|