|
Five-bar Cichlid (Dwarf Frontosa) Neolamprologus tretocephalus
Stærð: 15 cm.
Kynin: Kyngreining er erfið. Uggarnir oddmjórri á hængnum. Hrygnan jafnan minni.
Um fiskinn: Þessi siklíða er árásargjörn á sína eigin tegund. Hún vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig, einkum fyrir hrygnurnar að fela sig innan um. Best að hafa sendinn botn. Stór og myndarlegur, gráleitur fiskur með 5 svörtum þverböndum. Þeir henta best einir í búri því þeir geta verið grimmir á hrygningartímanum. Geta þó gengið með öðrum afríkusiklíðum, einkum úr Tangan- yikavatni. Harðgerður en plássfrekur byrjendafiskur. Góð vatnsfiltrun nauðsynleg og gæta þarf þess að skipta oft um vatn en lítið í einu (10-15% á viku). Viðkvæmir fyrir vatnsgæðum. Æxlun: Það er frekar erfitt að fá þessa siklíðu til að æxlast en hún hrygnir oftast í mjóum hellum eða sprungum. Mynda föst pör sem verja hrygningar- svæðið, hrognin og afkvæmin. Hrognafjöldi allt að 400. Hrognin klekjast út á 48 klst og seiðin eru frísyndandi 7-9 dögum síðar og má fóðra á dafníu eða artemíu.
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 24-27°C
Sýrustig (pH): 7,5-8,2
Harka (gH): 8-18
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: 1-2” 2.290 kr 2-3” 3.690 kr
|
|