toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Nimbochromis fuscotaeniatus

nimbochromis_fuscotaeniatus3

Fuscotaeniatus
Nimbochromis fuscotaeniatus

Stærð: 25 cm

Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en kvenfiskurinn og með oddhvassari ugga.

Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem hann ver af miklu harðfylgi og hann hefur mikla matarlyst. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri með Vallisneria. Heldur sig í sendnum svæðum allt niður á 20 m dýpi. Fiskurinn finnst í suðurhluta Malavívatns við Namalenje-eyju.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og ungviði að geta leitað skjóls í hellum eða holum. Hrygnur geta átt allt upp í 60-80 seiði í einu.

Búrstærð: 600 l

Hitastig:  24-26°C

Sýrustig (pH): 8,2

Harka (gH): 18

Fóður: Þurrfóður, kjötmeti.

nimbochromis_fuscotaeniatus5
nimbochromis_fuscotaeniatus1
botn