toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Nimbochromis livingstonii   

Livingstoni (Kalingo)
Nimbochromis livingstonii

Stærð: 25-30 cm

Kynin: Karlfiskurinn er stærri og flekkóttur en hrygn- an litdaufari (neðri mynd). Hængar verða dökkbláir í hrygningu.

Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem hann ver af miklu harðfylgi og hann hefur mikla matarlyst. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri með Vallisneria. Heldur sig í sendnum svæðum allt niður á 114 m dýpi. Fiskurinn finnst víða í Malavívatni og efri hlutum Shire-fljóts og Malombevatns.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og ungviði að geta leitað skjóls í hellum eða holum. Hrygnur geta átt allt upp í 60-80 seiði í einu.

Búrstærð: 1.000 l

Hitastig:  25-28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 9-19

Fóður: Þurrfóður, kjötmeti, smáfiskar.

Livingstoni
Nimbochromis_livingstonii_female
botn