|
Polystigma Nimbochromis polystigma
Stærð: 25-30 cm
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari og stærri en kvenfiskurinn. Ungviðið og hrygnur eru brúndröfnótt- ar. Hængar taka á sig fagurblágrænan blæ á hrygn- ingartímanum (efsta mynd).
Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem hann ver af miklu harðfylgi og hann hefur mikla matarlyst. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri með Vallisneria. Heldur sig í gróðurmiklum, sendnum svæðum allt niður á 75 m dýpi þar sem smáfiskar halda sér, en þeir eru fæða hans. Í náttúrunni liggur hann eins og dauður á botninum uns smáfiskar hætta sér of nærri. Fiskurinn finnst víða í Malavívatni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og ungviði að geta leitað skjóls í hellum eða holum. Hrygnur geta átt allt upp í 60-80 seiði í einu (neðsta mynd).
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 25-27°C
Sýrustig (pH): 7,2-8,8
Harka (gH): 10-18
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti, smáfiskar.
|
|