|
|
Venustus (Giraffe Cichlid) Nimbochromis venustus
Stærð: 25-30 cm
Kynin: Karlfiskurinn er stærri og flekkóttur en hrygn- an litdaufari. Hængar blána í framan á hrygningar- tímanum.
Um fiskinn: Þessi stórvaxni fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem hann ver af miklu harðfylgi og hann hefur mikla matarlyst. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrlegu heimili hans. Sómir sig vel í búri með Vallisneria. Heldur sig í sendnum svæðum á um 15 m dýpi þar sem smáfiskar halda sér en þeir eru fæða hans. Í náttúrunni grefur hann sig í sandinum uns bráðin kemur nógu nálægt til að hann geti gripið hana. Fiskurinn finnst víða í Malavívatni og efri hlutum Shire-fljóts og Malombevatns.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og ungviði að geta leitað skjóls í hellum eða holum. Hrygnur geta átt allt upp í 60-80 seiði í einu.
Búrstærð: 600 l
Hitastig: 25-27°C
Sýrustig (pH): 7,2-8,8
Harka (gH): 10-18
Fóður: Þurrfóður, kjötmeti, smáfiskar.
|
|