|
Noble Macaw Ara nobilis cumanensis
Lýsing: Eins og A. n. nobilis nema ljósari blár á enni og hvirfli; efri goggur ljós; stærri.
Lengd: 33 cm.
Lífslíkur: 40 ár.
Um kynin: Óverulegur munur á kynjum. DNA-greiningar þörf.
Uppruni: Brasilía sunnan Amazon fljótsins í héruðunum Para, Maranháo, Piauí og Bahia; blendingar með A. n. longipennis í miðhluta Goiás.
Um fuglinn: Þetta er einn minnsti arnpáfinn í ættinni og því áhugaverður. Hann er auðveldari í umhirðu en margir ættingjar hans. Þetta er bráðgáfaður fugl og því auðtaminn, skemmtilegur, félagslyndur og fyndinn. Einstakur fugl getur verið hávær, en flestir láta í sig heyra kvöld og morgna eins og aðrir páfagaukar. Þeir eru þó ekki eins háværir og stóru arnpáfarnir og því góður valkostur. Þetta eru ekki bestur talfuglarnir en sumir verða góðir talarar. Hansarinn binst eiganda sínum fljótt sterkum böndum og skemmtir honum tímunum saman með látbragði sínu og ærslum.
Hávaðasemi: Í meðallagi fyrir dvergara. Einstaka fugl gargar mikið.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar algengur.
|
|