|
Northern Rosella Platycerus elegans nigrescens
Lýsing: Höfuð svart; efri kinnar hvítar og síðan bláfjólubláar neðan til; bringa og kviður fölgulur og hver fjöður með fíndökkri brún; undirstélsblöðkur rauðar; hnakki, bak og axlarfjaðrir svartar með fölgulri brún; innri miðvængblöðkur svartar; vængbeygja og ytri miðvængblöðkur bláfjólubláar; aukavængblöðkur föl-bláfjólubláar; aukaflugfjaðrir, ytri flötur innri hluta aðalflugfjaðra, aðalvængblaðka og undirhlið vængblaðka bláfjólublá; neðra bak og efrihluti stélblaðka fölgulur með þykkdökkri brún, efrihlið miðstélfjaðra dökk kopargræn og dökkblá til endanna; ytri stélfjaðrir fölbláar en með dökkblárri rót og fölum endum: undirhlið stéls fölbláleit; goggur ljósgráleitur; augnhringur mjór og dökkgrár; augu dökkbrún; fætur gráir.
Óþroskaðir fuglar líkjast fullorðnum en með daufari fjaðrir; rauðar fjaðrir á víð og dreif á höfði; hnakka-, bak- og axlarfjaðrir skítuggráar með breiðri daufgulri brún; fölt undirvængband á mörgum fuglum; fá fullorðinsham um 15 mánaða gamlir.
Lengd: 28 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Erfitt að greina sundur kyn; kvenfuglinn að jafnaði minni; höfuð minna og kringlóttara; sumir kvenfuglar hafa hvítleitt undirvængband.
Uppruni: Norðvestur- og norðurhluti Ástralíu og stærri eyjar ss. Bathurst, Melville, Milingimbi, Cockatoo, Koolan, Augustus, Uwins, Coronation og Boongaree.
Um fuglinn: Fallegur og hrekklaus fugl. Hann er viðkvæmari en margar rósellutegundir. Fjörugur og góður flugfugl. Frekar hlédrægur og hefur gaman af að baða sig. Getur ekki verið með öðrum fuglum. Hefur gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.
Hávaðasemi: Ekki mjög hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Frekar sjaldgæfur vegna umhverfiseyðingar.
|
|