|
 |
|
Ventralis Ophthalmotilapia ventralis
Stærð: 15 cm (hængar).
Kynin: Kyngreining er frekar auðveld. Hængurinn litmeiri frá blár upp í svarblár með langa og mjóa kviðugga sem eru gulir í endanum. Hrygnurnar eru meira silfurgráar.
Um fiskinn: Þessi siklíða er árásargjörn á sína eigin tegund. Hún vill hafa nóg af steinum og grjóti kringum sig, einkum fyrir hrygnurnar að fela sig innan um. Best að hafa sendinn botn og mikið sundpláss. Geta gengið með öðrum afríkusiklíðum, einkum úr Tanganyikavatni. Best að hafa nokkrar hrygnur á hvern hæng. Viðkvæmari en margir aðrir úr Tanganyikavatni. Góð vatnsfiltrun nauðsynleg og gæta þarf þess að skipta oft um vatn en lítið í einu (10-15% á viku). Viðkvæmir fyrir vatnsgæðum. Fjölmörg afbrigði til - nefnd eftir því hvaðan úr vatninu þau koma td.: "Banza", "Chaitika", "Chimba", "Ikola", "Kabogo", "Kabogo white cap", "Kachese", "Kala", "Kakondi", "Kalambo", "Karilani", "Kapampa", "Kapembe", “Kasakalawe” (neðsta mynd), "Kipili", "Kitumba", "Malasa", "Maswa", "Moba", "Moliro", "Mpimbwe", "M'toto", "Nkove", "Sumbu" (mið mynd), "Tembwe", "Zongwe". Æxlun: Það er frekar erfitt að fá þennan munnklekjara til að fjölga sér. Fjölkvænisfiskur þar sem hængurinn hrygnir með hvaða hrygnu sem er. Hrygnan gengur með upp í sér í 3 vikur.
Búrstærð: 250 l
Hitastig: 27°C
Sýrustig (pH): 8,6-9,1
Harka (gH): 8-18
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, kjötmeti.
Verð: ”Kigundo” 4.690 kr.
|
|