toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FUGLAR

ANNAÐ

Orange-bellied Parrot

Orange-bellied Parrot
Neophema chrysogaster

Lýsing: Almennur litur grænn; ennisband blátt með fölblárri brún; nefsvæði og fremri hluti kinna gulleitur; kinnar daufgrænar; bringa föl olivíugræn; kviður gulur með skærappelsínugulan blett; undirstélsblöðkur og undirhlið stélfjaðra gul; vængbeygja, vængbrún og ytri hluti aukavængblaðka bláfjólubláar; miðvængblöðkur fölbláar; ytri hluti aðalvængblaðka og aðalflugfjaðra dökkbláfjólublár; efri hluti stéls grænn með bláu ívafi, ytri fjaðrir gulleitar; hvíta bandið undir væng vantar; goggur grábrúnn; augu dökkbrún; fætur gráir.

Óþroskaðir fuglar eins og kvenfugl en yfirleitt daufari í fiðri; appelsínuguli kviðbletturinn minni; hvíta væng- bandið til staðar; erfitt  að kyngreina ungviði; fá full- orðinsfjaðrir 8-9 mánaða gamlir.

Lengd: 20 cm.

Lífslíkur: 20-25 ár.

Um kynin: Kvenfugl eins og karlfugl en litir almennt daufari; daufgrænar fjaðrir á víð og dreif á baki; ennisband án föl blárra brúna; appelsínuguli kviðbletturinn minni; hvítt band undir vængjum sýnilegt á sumum kvenfuglum.

Uppruni: Varpsvæði við suðvesturströnd Tasmaníu; hefur vetrarsetur við suðausturströnd Ástralíu frá Gippslandvatni í Victoriu vestur til Alexandrinavatns; heimsækir nokkrar eyjar á Bass sundi (einkum King Island) þegar hann flýgur á varpstöðvar; áður einnig við Sydney, New South Wales.

Um fuglinn: Hljóðlátir og rólegir fuglar. Bestir í hópum. Mjög viðkvæmir fyrir pestum.

Hávaðasemi: Hljóðlátur fugl.

Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauðsynlegt.

Staða í dag: CITIES I. Í mikilli útrýmingarhættu. Innan við 200 fuglar árið 1990, þar með talin 50 varppör; stranglega verndaður í Ástralíu.

orangebellied1

Smelltu á myndina til að fá fleiri myndir

botn