|
Pale-headed Rosella (Mealy Rosella) Platycercus adscitus palliceps
Lýsing: Eins og P. a. adscitus en höfuð, kinnar og háls hvítur; hvirfill, hnakki og eyrnablöðkur með fölgulum blæ; bringa blá-djúpblá með mismiklu gulhvítu; allar bringu- og kviðfjaðrir með fíndökkri brún; hnakka- og bakfjaðrir svartar með breiðri, gulgylltri brún; axlarfjaðrir svartar með breiðri, grænblárri og gulri brún; neðra bak og efri stélblöðkur blágrænar og allar fjaðrir með fíndökkri brún; hvítt vængband á undirhlið flugfjaðra hjá báðum kynjum; aðeins stærri.
Óþroskaðir fuglar eins og fullorðnir, en fjaðrir daufari, oft nokkrar rauðar fjaðrir á víð og dreif á höfði og hnakka; daufara undirvængband; fær fullorðinsham 16 mánaða gamall.
Lengd: 32 cm.
Lífslíkur: 30-35 ár.
Um kynin: Kvenfuglinn er að jafnaði minni og með fölari bringu- og kviðfjaðrir; goggur yfirleitt minni. undirvængband.
Uppruni: Norðausturhluti New South Wales norður til Queensland í Ástralíu; blandast P. a. adscitus á Atherton Tableland fjallasvæðinu.
Um fuglinn: Þetta er athafnasamur og hrekklaus fugl en svolítið skapmikill. Er viðkvæmari en aðrar rósellur. Hann verður harðger þegar hann aðlagast nýjum aðstæðum. Hann getur ekki verið með öðrum fuglum. Hefur gaman af að baða sig og nagar mikið og þarf því gott framboð af greinum. Hefur einnig gaman af að krafsa í jörð og þarf því reglulega ormahreinsun.
Hávaðasemi: Miðlungs hávær.
Fóðrun: Fjölbreytt kornfóður, ávextir og grænmeti. Einnig vel soðið alifuglakjöt, fiskur. Fjölvítamín nauð- synlegt.
Staða í dag: CITIES II. Algengur víðast hvar.
|
|