|
 |
|
Yellowjacket Cichlid Parachromis friedrichsthalii
Stærð: 30 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari og stærri en hrygnan. Búkurinn er gulleitur með svörtum böndum og skellum. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.
Um fiskinn: Þessi stórvaxni og myndarlegi ránfiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Þetta er góður matfiskur þar sem hann veiðist. Sterkbyggður og kröftugur fiskur sem getur þóst liggja “dauður” á búrbotninum til að laða að grunlausa bráð. Þetta er mjög gáfað dýr og gaman að eiga og fylgjast með henni.
Æxlun: Það er frekar auðvelt að fá þá til að fjölga sér ef búrið einfaldlega býður upp á það. Parið verður kynþroska 12-14 mánaða og velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku. Geta hrygnt á 4 vikna fresti ef tekið er undan þeim.
Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafshlið Mexíkó (Usu- macinta fljót), Belís, Hondúras og Gvatemala.
Búrstærð: 300 l
Hitastig: 26-30°C
Sýrustig (pH): 7
Harka (gH): 20
Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía, smáfiskar.
Verð: 5 cm: 1.590 kr; 10-12 cm: 7.690 kr.
|
|