|
Jaguar Cichlid (Guapote Tigre) Parachromis managuensis
Stærð: 55 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari og stærri en hrygnan . Búkurinn er grænsilfurleitur, höfuðið ögn rauð- grænleitt. Vottar fyrir svörtum þverböndum á búknum og svart stórperlumynstur á öllum fiskinum. Uggarnir eru oddmjórri á hængnum.
Um fiskinn: Þessi stórvaxni og myndarlegi ránfiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Þetta er góður matfiskur þar sem hann veiðist. Afar sterkbyggður og kröftugur fiskur sem hentar bara í stór búr. Kjálkar jagúarsiklíðunnar eru afar kröftugar og tennurnar geta orðið um 5 mm langar. Ef bráðin er of stór til að gleypa er hún bara rifin niður í smærri bita! Þetta er samt mjög gáfað dýr og gaman að eiga og fylgjast með.
Æxlun: Það er frekar auðvelt að fá þá til að fjölga sér ef búrið einfaldlega býður upp á það. Parið verður kynþroska 12-14 mánaða og velur sér stein eða holu og hrygnir þar. Þetta eru góðir foreldrar og verja ungviðið. Seiðin fara að synda um eftir rúma viku. Geta hrygnt á 4 vikna fresti ef tekið er undan þeim.
Uppruni: Mið-Ameríka: Atlantshafsmegin frá Ulua fljóti (Hondúras) til Matina fljóts (Kostaríka)
Búrstærð: 700 l
Hitastig: 25-36°C
Sýrustig (pH): 7-8,7
Harka (gH): 10-15
Fóður: Þurrfóður, dafnía, artemía, smáfiskar.
Verð: 2.990 kr.
|
|