toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Pearl Gourami

Pearl Gourami
Trichogaster leerii

Stærð: 12 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er stærri og spengilegri en kerlan og mun litmeiri. Hann er rauðurleitur á kvið fram undir munn, með svart band eftir búknum endilöngum og alsettur perlumynstri. Gotraufarugginn og bakugginn trosna upp eins og endinn á silkislæðu. Hrygnan er litminni og feitlagnari.

Um fiskinn: Falleg og vinsæl gúramítegund. Hinn tignarlegi hængur er sífellt að gera sig til við hrygnuna og býr oft til flothreiður til að hrygna í. Hann getur verið nokkuð aðgangsharður við hrygnuna og stundum við aðra fiska sem þvælast fyrir. Hentar ágætlega stakur eða í pörum. Gengur með flestum, tetrum og mörgum minni börbum, en síður með nörturum. Góður samfélagsfiskur sem hentar vel fyrir byrjendur. Harðgerður og sýnilegur en þarf hreint vatn.

Uppruni: Asía:  Malay-skagi, Tæland og Indónesía (Súmatra og Borneó).

Æxlun: Hængurinn býr til flothreiður utan um fljótandi gróðurleifar. Hann lokkar síðan hrygnuna til sín og stingur eggjunum upp í hreiðrið eftir hrygningu. Síðan rekur hann hrygnuna burt og gætir hreiðursins. Hrognin klekjast út á rúmum sólarhring við 27-28°C hita. Seiðin eru agnarsmá og hanga í yfirborðinu meðan þau nærast á kviðpokanum. Lækka þarf vatnsborðið niður í 10-15 cm til að þau drukkni ekki. Best er síðan að fjarlægja hænginn. Seiðin nærast fyrst á harðsoðinni eggjarauðu en síðan á dafníu og artemíu. Þau eru frísyndandi u.þ.b. viku frá klaki.

Búrstærð: 200 l

Hitastig: 24-28°C

Sýrustig (pH): 6-8

Harka (gH): 5-19

Fóður: Þurrfóður, blóðormar og hvers kyns smáormar.

Verð: 850 kr.

Pearl2
Pearl
botn