|
|
Peppered Corydoras Corydoras paleatus
Stærð: 5,9 cm.
Kynin: Hrygnan er stærri og bústnari en hængurinn. sem hefur oddhvassari bak-, eyr- og gotraufarugga.
Um fiskinn: Doppugraninn er friðsamur fiskur og eyðir mestum tímanum rótandi í botninum í fæðuleit. Hann lifir einnig á hræjum annarra fiska, en þó verður að fóðra hann líka. Þetta er harðger fiskur sem getur lifað í mörg ár og þolir flest vatnsskilyrði.
Æxlun: Doppuryksugan hrygnir á glerið í búrinu. Hægt er að fjarlægja hrognin með rakhníf og klekja þau út í öðru búri.
Uppruni: S-Ameríka: neðri vatnsvæði Paraná fljóts og ár við strendur Úrúgvæ og Brasilíu.
Búrstærð: 50 l
Hitastig: 18-23°C
Sýrustig (pH): 6-8
Harka (gH): 5-19
Fóður: Þurrfóður, dafnía, blóðormar, túbífexormar.
Verð: Venjulegur 690 kr. Albínó 690 kr.
|
|