|
|
Deep Water Hap Placidochromis electra
Stærð: 15 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er litsterkari en kvenfiskurinn, með áberandi svarta þverrák gegnum augað og annað yfir tálknin.
Um fiskinn: Þessi yndisfagri fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Best að hafa nokkrar hrygnur á hvern hæng. Heldur sér á 15 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Finnst nálægt Likoma eyju og víðar í vatninu.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 400 l
Hitastig: 24-26°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 9-19
Fóður: Dafnía, fullvaxin artemía, þurrfóður.
|
|