toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Protomelas “Fenestratus Ngkuyo”

Fenestratus Ngkuyo

“Fenestratus Ngkuyo”
Protomelas “Fenestratus Ngkuyo” (Chimoto Yellow)

Stærð: 12-15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er silfurgrár með breið þverböd en bláleitur/gulleitur með gulan kviðugga (neðsta mynd) á fengitímanum. Líkist að öðru leyti P. fenestratus. Hrygnan er brúnleit (mið mynd).

Um fiskinn: Þessi glæsilegi fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á grýttum botni á 20-50 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Hængar halda sér í 3-4 m fjarlægð frá hver öðrum. Finnast við Ngkuyo eyju í Mbamba Bay við Tansaníuströnd við norðaustanvert vatnið. Skyldur P. fenestratus og P. “Fenestratus Taiwan” sem er með rauðleitan kviðugga en ekki gulan.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 520 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Fenestratus Ngkuyo1
Fenestratus Ngkuyo2
botn