toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Protomelas “Fenestratus Taiwan”

Fenestratus Taiwan

“Fenestratus Taiwan”
Protomelas “Fenestratus Taiwan” (Taiwan Reef)

Stærð: 12-15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er silfurgrár með breið þverbönd en bláleitur/gulleitur með rauðleitan kviðugga (efsta mynd) á fengitímanum. Líkist að öðru leyti P. “Fenestratus Ngkuyo.” Hrygnan er brúnleit með sýnileg þverbönd (neðsta mynd).

Um fiskinn: Þessi glæsilegi  fiskur eignar sér yfirráða- svæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér á grýttum botni á 5-50 m dýpi í Malavívatni. Þarf stórt búr með mörgum steinum og felustöðum til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Hængar halda sér í 3-4 m fjarlægð frá hver öðrum. Finnast við einkum við Taiwan Reef út af Chisumulu eyju við Malavíströnd. Skyldur P. fenestratus og P. “Fenestratus Ngkuyo” sem er með gulan kviðugga en ekki rauðleitan. Tveir undirflokkar til, annar kenndur við Mara Rocks en hinn við Higga Reef.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 520 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

1
2
botn