|
|
Annectens Protomelas annectens
Stærð: 15-18 cm, stundum stærri.
Kynin: Karlfiskurinn er með þverbönd sem eru misáberandi eftir skapi og langsum rönd einnig. Er blár eða svarblár í hrygningarlitum en hrygnan grábrúnleit og stundum vottar fyrir rauðbrúnum blæ á baki (mið mynd).
Um fiskinn: Þessi fallegi fiskur eignar sér sennilega yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karl- fiska í sama búr. Er einn af fáum malavisiklíðum sem heldur sér í hópum yfir sendnum botni. Aðrar tegundir eru td. Cyrtocara morii, Placidochromis electra, P. electra “Blue ongi”, Otopharynx selenurus og stakir hængar fylgja oft Taeniolethrinops praeorbitalis eftir. Finnst víðsvegar í Malavívatni. Þarf stórt búr með svolítið af steinum og felustöðum en líka miklum sandbotni til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.
Búrstærð: 520 l
Hitastig: 28°C
Sýrustig (pH): 8
Harka (gH): 22
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|