toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Protomelas cf. pleurotaenia

Cf. Pleurotaenia

Cf. Pleurotaenia
Protomelas cf. pleurotaenia

Stærð: 12-15 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er með eina langsum rönd og stundum vottar fyrir annarri. Hann er silfur-gulgræn en málmblár í hrygningarlitum. Hrygnan er grá- brúnleit með langsum rák og stundum gulleit á baki (mið mynd). Nafnið “pleurotaenia” merkir “með rákir á hliðinni”.


Um fiskinn: Þessi smámunnti fiskur eignar sér yfir- ráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Heldur sér yfir gróðurríkum, sendnum botni á 3-10 m dýpi og finnst víðsvegar í Malavívatni. Þarf stórt búr með slatta af steinum og felustöðum og sendnum botni til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Sáralítið sést í heimabúrum og því lítil reynsla kominn á hann.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 520 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Cf. Pleurotaenia1
botn