toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Protomelas fenestratus

Fenestratus
Protomelas fenestratus

Stærð: 12-15 cm.

Kynin: Til í mörgum litarafbrigðum. Hjá sumum afbrigðum vottar fyrir tveim langsöm röndum og dökkum þverböndum. Hængar eru yfirleitt fagurbláir með gulan kvið og háls. Sum afbrigði eru gulari á gliðum og hnakka. Hrygnan er jafnan silfurgrá, jafnvel gulleit, með rákamynstrinu. Sjá nánari umfjöllun um einstök litarafbrigi. Nafnið “fenestratus” merkir “gluggi” og vísar til rákamynstursins.

Um fiskinn: Þessi vinsæli og fallegi fiskur eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr. Þarf stórt búr með slatta af steinum og felustöðum og sendnum botni til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili hans. Heldur sér yfir grýttum botni niður á 25 m dýpi og finnst víðsvegar í Malavívatni, einkum við Chilumba á norðvesturströndinni.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar. Þess vegna þurfa hrygnur og seiði að fá skjól í hellum og holum.

Búrstærð: 520 l

Hitastig:  28°C

Sýrustig (pH): 8

Harka (gH): 22

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Fenestratus
botn