toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Pseudotropheus crabro

pseudotropheus-crabro

Bumble Bee Cichlid
Pseudotropheus crabro

Stærð: 10 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er dökkur á bak en gulur á kvið. Dökknar við hryggningu (efsa mynd). Kvenfiskurinn er brúnleitari með rúnnaðri ugga (mið mynd). Bæði með býflugnamunstri á bakinu.

Um fiskinn: Bíflugnasiklíðan eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr.  Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Finnst við Eccles Reef, West Reef, Chinyankwazi, Chiyamwezi, Maleri, Mbenji, Likoma og Chisumulu-eyjur og Nkata Bay. Bíflugnasiklíðan sérhæfir sig í að þrífa óværu af kattfiskum af tegundinni Bagrus meridionalis.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum.

Búrstærð: 250 l

Hitastig:  26-28°C

Sýrustig (pH): 7,5-8,2

Harka (gH): 15

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

pseudotropheus_crabro_x
pseudotropheus_crabro_2

Centre & bottom: Copyright www.jjphoto.dk

botn