|
|
Slender Zebra (Elongate Mbuna) Pseudotropheus elongatus
Stærð: 11 cm.
Kynin: Karlfiskurinn er ljósblár með dökkum þverböndum. Kviðurinn getur orðið svartur í hrygn- ingarham. Hann er búklengri en hefðbundin sebra- siklíða. Hrygnan er minni og oftast ekki með eggjabletti.
Um fiskinn: Þessi ákveðna siklíða eignar sér yfirráðasvæði sem gerir erfitt um vik að setja tvo karlfiska í sama búr. Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Mjög frekir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Best að hafa 3-4 hrygnur á hvern hæng. Finnast í Nkata Bay og Mbamba Bay í Malavívatni.
Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.
Búrstærð: 250 l
Hitastig: 22-25°C
Sýrustig (pH): 7,5-8
Harka (gH): 9-19
Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.
|
|