toppurFiskarFuglarHundarKettirNagdýrFroskdýrÁ aðalsíðu
transparent
transparent
 

FERSKVATN

ANNAÐ

Pseudotropheus flavus

Pindani (Eduard’s Mbuna)
Pseudotropheus flavus

Stærð: 10 cm.

Kynin: Karlfiskurinn er skærgulur með dökkum þverböndum en hrygnan smærri og litminni og brúnleitari.

Um fiskinn: Þessi siklíða eignar sér yfirráðasvæði sem gerir það erfitt að setja tvo karlfiska í sama búr.  Stórt búr með mörgum steinum og felustöðum er best svo til að umhverfið líkist náttúrulegu heimili fisksins. Mjög ákveðnir fiskar sem verja svæði sitt af heift. Best að haf 3-4 hrygnur á hvern hæng. Finnast umhverfis Chinyankwazi-eyju í Malaví- vatni. Sjaldséð og mjög litfögur tegund.

Æxlun: Þessir fiskar eru munnalarar af mbúnuætt og fjölkvænisfiskar. Hrygnur og seiði þurfa að geta leitað  skjóls í hellum og holum. Dafna vel á sendnum botni þar sem þeir geta nartað í þörunga á steinum.

Búrstærð: 300 l

Hitastig:  23-27°C

Sýrustig (pH): 7,4-8,4

Harka (gH): 7-30

Fóður: Dafnía, fullvaxinn artemía, grænfóður.

Pseudotropheus flavus
botn